Bio Kult Candéa er blanda af góðgerlum, hvítlauk og Grape Seed Extract sem hefur góða áhrif á meltinguna og hjálpar til við að draga úr áhrifum og vexti candida svepps.
Candida albicans er svokallaður tækifærissveppur (sem er ákveðið form af ger) og er hann í litlu mæli í munni og þörmum til að aðstoða við meltingu. Hann er í raun eðliegur hluti af hópi þeirra örvera sem lifa í meltingarveginum en ef þessi sveppur fær að vaxa óhindrað verður hann orsök fjölda óæskilegra einkenna eins og t.d. þreytu, liðverkja, loftmyndunar, þyngdaraukningar og löngun í sykruð matvæli og drykki eykst.
Meltingatruflanir, sveppa- sýkingar eða þunglyndi?
Afar mikilvægt er að þarmaflóran okkar sé heilbrigð og í jafnvægi en það er stundum hægara sagt en gert því það er svo margt í nútímasamfélaginu sem hefur áhrif þar á og kemur á ójafnvægi í þörmunum. Þar ber helst að nefna sýklalyf, óreglulegan svefn, streita, mikil kaffi- og áfengisneysla og að sjálfsögðu neysla sykurs og einfaldra kolvetna. Ef það verður ójafnvægi á þarmaflórunni og það dregur úr vexti heilbrigðra baktería myndast kjöraðstæður fyrir þær óæskilegu og er candidasveppurinn þá ofarlega á blaði. Ef hann fer að vaxa óhindrað veldur hann oft miklum usla og einkennin leyna sér ekki. Það getur t.d. verið:
- Meltingatruflanir
- Uppþemba
- Óeðlilegar hægðir
- Húðvandamál
- Sveppasýkingar (sérstaklega hjákonum)
- Tímabundið ofnæmi
- Hugsanlegt þunglyndi
Sveppur sem elskar sykur
Candida sveppurinn elskar sykur og nærist og dafnar vel þegar svoleiðis er í boði. Hann ýtir því líka undir löngun í sætindi og eiga margir erfitt með að kljást við þann púka. Mikill ofvöxtur á candida albicans getur valdið
því að þarmaveggirnir veikjast og verða gegndræpir (leaky gut/gegndræpur ristill) og þá er ástandið orðið alvarlegt því þegar óæskileg efni ná að leka úr þörmunum út í líkamann valda þau sjúkdómum eins og t.d. síþreytu, liðagigt, mígreni og fleiru sem getur verið mun alvarlegra.
Góðir gerlar og breytt mataræði
Það er vel hægt að ráða yfirlögum candida sveppsins og það fyrsta sem þarf að gera er að útiloka allan sykur úr fæðunni. Það þýðir að við sleppum sælgæti, kökum, hveiti og áfengi. Einnig skal draga úr neyslu á korni, baunum, ávöxtum, brauði, pasta og kartöflum, en það mun hindra vöxt sveppsins og á endanum hjálpa til við að koma á jafnvægi. Einnig er mikilvægt að sleppa neyslu á gerjuðum matvælum eins og t.d. súrkáli því þó svo að það sé gott og örvi vöxt baktería í þarmaflórunni, þá örvar það líka óæskilegar bakteríur. Til þess að verið sé að vinna heilshugar að því að drepa gersveppinn og koma jafnvægi á þarmaflóruna er best að taka inn góða
mjólkursýrugerla því það þarf að styðja við framleiðslu á góðum bakteríum á sama tíma og við drögum úr vexti þeirra „vondu“.
Bio Kult Candéa er lausnin
Bio Kult Candéa inniheldur öfluga blöndu af vinveittum gerlum ásamt hvítlauk og Grapefruit Seed Extract (GSE) sem hafa góð áhrif á meltinguna og hjálpa til við að drepa niður candida albicans gersveppinn. Fyrir utan að innihalda 7 mismunandi gerlastrengi sem byggja upp vinveittu þarmaflóruna er þarna hvítlaukur sem er gríðarlega öflugur við að drepa niður gerjun og trufla virkni sveppsins og GSE sem er þykkni, gert úr kjörnum greip vaxta. GSE inniheldur efnasambönd sem eru afar virk gegn fjölmörgum tegundum baktería, veira og sveppa og hafa langvarandi sveppasýkingar (af völdum candida albicans) verði meðhöndlaðar með þessu efni.
Uppþemban hætti og sykur- löngun minnkað til muna!
Inntaka á Bio Kult Candéa hefur reynst fjölmörgum afar vel og er Kolbrún Hildur Gunnarsdóttir ein þeirra: „Í mörg ár fann ég fyrir óþægindum í maga. Ég upplifði það yfirleitt þegar líða tók á daginn að ég yrði sífellt uppblásnari um magann og sér í lagi efri hluta hans þannig að ég taldi líklegt að um óþol væri að ræða. Mér var bent á Bio Kult Candéa hylkin og ákvað að það sakaði ekki að prófa. Þegar ég hafði tekið staðfastlega 2 hylki daglega með stærstu máltíð dagsins í 2 mánuði fór ég að finna mun. Ég hafði í mörg ár verið afar hrifin af ákveðnum gosdrykk og hann varð hreinlega að vera til í ísskápnum. Eftir þessa tvo mánuði fór ég að finna minnkandi löngun í hann sem og aðra sykraða gosdrykki og hefur vatnsdrykkja aukist að sama skapi. Í dag hefur gosið að mestu fokið og engin löngun til staðar í slíkt lengur. Ég hef einnig náð að halda mér í kjörþyngd og þakka
ég það daglegri inntöku Bio-Kult Candéa sem fær að ferðast með mér allt sem ég fer og útblásni maginn gerir sjaldan vart við sig í dag ef ég gæti mín á salti og sykri“
Bio Kult Candéa er öruggt og hentar vel fyrir alla, einnig barnshafandi konur, mjólkandi mæður og börn. Pakkinn innheldur 60 hylki og ef um fyrirbyggjandi meðferð er að ræða, duga 2 hylki á dag (1 hylki tvisvar á dag). Ef Candida sýkingin hefur þegar blossað upp þá er í lagi að taka 2 hylki tvisvar á dag.
Bio-Kult Candéa
Bio-Kult Candéa – fyrir þarmaflóruna, ónæmiskerfið og meltinguna
Bio-Kult Candea – fyrir viðkvæm svæði, ónæmiskerfið og meltinguna
Sérhönnuð góðgerlablanda með það að markmiði að styðja við virkni ónæmiskerfisins, draga úr meltingartengdum vandamálum og að vernda viðkvæm svæði.
Inniheldur 7 sérvalda góðgerlastofna ásamt hvítlauk og greipaldinþykkni.
Lýsing
Bio-Kult Candea – fyrir þarmaflóruna, ónæmiskerfið og meltinguna.
Bio Kult Candea er háþróuð og fjölvirk örverublanda sem inniheldur 7 frostþurrkaða og sýruþolna gerlastofna ásamt hvítlauk og Grapefruit Seed Extract (GSE) sem getur haft góð áhrif á meltinguna og hjálpað til við að drepa niður candida albicans gersveppinn. Hvítlaukur er einnig þekktur fyrir sína eiginleika við að drepa niður gerjun og trufla virkni sveppsins. GSE þykknið er gert úr kjörnum greip ávaxta og inniheldur efnasambönd sem talin er afar virk gegn fjölmörgum tegundum baktería, veira og sveppa og hafa langvarandi sveppasýkingar (af völdum candida albicans) verði meðhöndlaðar með þessu efni.
Bio Kult Candéa er öruggt og hentar vel fyrir alla, einnig barnshafandi konur, mjólkandi mæður og börn.
Ef um fyrirbyggjandi meðferð er að ræða, duga 2 hylki á dag (1 hylki tvisvar á dag). Ef Candida sýkingin hefur þegar blossað upp þá er í lagi að taka 2 hylki tvisvar á dag.
- Getur styrkt þarmaflóruna, ónæmiskerfið og meltinguna
- Hvítlaukur og greipkjarnaþykkni (GSE) er þekkt fyrir eiginleika sína að vinna gegn gegn sveppasýkingum, uppþembu og húðvandamálum
- 7 tegundir frostþurrkaðra og sýruþolinna gerlastofna
Lifandi gerlastofnar:
- Lactobacillus casei PXN® 37™
- Lactobacillus rhamnosus PXN® 54™
- Streptococcus thermophilus PXN® 66™
- Lactobacillus acidophilus PXN® 35™
- Bifidobacterium longum PXN® 30™
- Bifidobacterium breve PXN® 25™
- Lactobacillus delbrueckii ssp. bulgaricus PXN® 39™
Hvert hylki inniheldur:
- Greipkjarnaþykkni 130mg
- Hvítlauk 60mg
Ábyrgjumst 1 milljarð lifandi góðgerla CFU/hylki (1 x 109 CFU/hylki), samsvarar 2.5 milljörðum lifandi gerla í grammi (>2.5 x 109 CFU/gramm), þar til geymsluþoli lýkur.
Frekari upplýsingar
Pakkningastærð | 60 |
---|
Leiðbeiningar um notkun
Takið 2 hylki á dag með aðal máltíð dagsins.
Börn eldri en 12 ára taka eitt hylki á dag með aðal máltíð dagsins.
Börn undir 12 ára – eins og læknir eða hjúkrunarfræðingur mælir með.
Hentar ófrískum konum. Mælum þó alltaf með samráði við lækni varðandi notkun bætiefna á meðgöngu.
Ef um fyrirbyggjandi meðferð er að ræða, duga 2 hylki á dag (1 hylki tvisvar á dag). Ef Candida sýkingin hefur þegar blossað upp þá er í lagi að taka 2 hylki tvisvar á dag.
Hver pakki innheldur 60 hylki.
Bio-Kult inniheldur soja og mjólk í mjög litlu magni og ætti það ekki hafa nein áhrif á þá einstaklinga sem eru með mjólkur- og/eða soja óþol.
Geymist við stofuhita á þurrum stað og ekki láta standa í beinu sólarljósi. Geymist þar sem börn ná ekki til.
Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótaefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma og tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma á borð við flogaveiki, ofvirkan skjaldkirtil og sykursýki.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótaefni eiga ekki að koma í staðinn fyrir fjölbreytt og hollt mataræði.
Elísabet –
Hefur bjargað mér.