Óþægindi í þvagfærum er eitthvað sem margir þekkja en sýking af völdum þarmabaktería er lang algengasta orsök blöðrubólgu og þá sérstaklega hjá konum. Hvernig skyldi annars standa á því að við fáum blöðrubólgu?
Í daglegu tali er oftast talað um þvagfærasýkingar sem blöðrubólgu en ástæða þessara sýkinga er að bakteríur, sem oftast eru E-coli bakteríur, komast í þvagið gegnum þvagrásarop og fara að fjölga sér í þvagblöðrunni. Þrátt fyrir að líkaminn sé þannig hannaður að hann ver okkur gegn flestum bakteríum, þá geta þessar
varnir brugðist. Algengast er að við fáum sýkingu í neðri hluta þvagfæranna, í þvagrás og blöðru en svo geta þær náð lengra upp og alveg upp í nýrun sem er þá orðið
mun alvarlegra.
Brunatilfinning og tíð þvaglát
Þvagfærasýkingar geta verið einkennalausar en þegar svo er ekki geta einkennin verið:
- Tíð þvaglátaþörf
- Brunatilfinning við þvaglát
- Erfitt að losa þvag, kemur í litlum bunum
- Þvagið virðist skýjað/gruggugt
- Litað þvag/sterk lykt af þvagi
- Verkir geta verið fyrir ofan lífbein
Elísabet Jónsdóttir, þriggja barna móðir og kennari, þekkir vel einkennin og hefur þessa sögu að segja af Bio Kult Pro Cyan:
„Ég á mér langa sögu um óþægindi á blöðrusvæði. Ég hef margoft fengið blöðrubólgu og þvagfærasýkingu og hef oft þurft að taka inn sýklalyf. Ég fékk tvívegis sýkingu núna undir lok ársins 2019 og tók sýklalyf í bæði skiptin. Ég var þrátt fyrir það alltaf með óþægindi á blöðrusvæðinu, tilfinningu eins og ég væri alveg að fá aftur sýkingu og var eiginlega að bíða eftir að sýkingin kæmi aftur, því ég var svo aum í blöðrunni sjálfri og með verki þar. Síðan ég fór að taka Bio Kult Pro Cyan og hef ég ekki fundið óþægindi í blöðrunni fyrir utan að í nokkra daga tók ég það ekki og fann strax óþægindin aftur, svo ég hef tekið það síðan og finn ekki fyrir neinu. Allt er eðlilegt.“
Konur frekar en karlmenn
Helstu ástæður þess að konur eru mun útsettari fyrir þvagfærasýkingum en karlar eru m.a.:
- Líffræðilegar. Styttri þvagrás en hjá karlmönnum og því styttra fyrir bakteríur að komast upp í þvagblöðruna og þvagrásarop þeirra liggur nálægt endaþarmsopinu.
- Kynhegðun. Konur sem eru kynferðislega virkar hafa meiri tilhneigingu en aðrar til að fá sýkingar. Nýir bólfélagar geta líka aukið á hættuna.
- Ákveðnar tegundir getnaðarvarna: Konur sem nota hettuna eru líklegri til að fá þvagfærasýkingu sem og konur sem nota sæðisdrepandi krem.
- Breytingaskeið. Eftir breytingaskeiðið dregur úr estrogenframleiðslu sem veldur breytingu á þvagfærum og gerir þau útsettari fyrir sýkingum.
Forvarnir og meðhöndlun
Þegar vægari þvagfærasýkingar (í neðri hluta þvagfæra) eru meðhöndlaðar í tíma, eru fylgikvillar litlir sem engir. Ýmislegt er hægt að gera til að minnka líkurnar á því að fá sýkingu í þvagfærin og koma hér nokkur ráð:
- Drekka nægan vökva, helst vatn. Þannig verður þvaglosun tíðari sem veldur því að bakteríur skolast út áður en þær nálgast blöðruna.
- Drekka trönuberjasafa. Þrátt fyrir að ekki séu til rannsóknir sem sýna að hann sé fyrirbyggjandi, getur hann ekki skaðað.
- Konur ættu að þurrka sig í áttina frá þvagrásaropinu og aftur að endaþarmsopinu til að forðast að bakteríur frá endaþarmi fari í þvagrásina.Hafa þvaglát strax
eftir samfarir. - Forðast vörur sem hugsaðar eru fyrir kynfærin á kvenfólki t.d.svitalyktarsprey og mögulega sápur og önnur efni sem geta valdið ertingi.
- Velja getnaðarvarnir af kostgæfni.
Einkaleyfisvarið innihaldsefni í bio Kult Pro-Cyan
Í Pro-Cyan eru tveir örverustofnar: L. acidophilus PXN 35 & L. plantarum PXN 47 og hefur reynslan sýnt að þeir séu verulega bakteríudrepandi og geti hamlað vöxt E. coli og Enterococcus faecalis sem eru algengasta orsök þvagfærasýkinga. Cranmax®er einkaleyfisvarin vinnsluaðferð á trönuberjum þar sem tryggt er að öll virk efni trönuberjanna séu til staðar og einnig að þau lifi af ferðalagið gegnum meltingarveginn til að tryggja hámarks upptöku. Virka innihaldsefnið PAC-A sem finnst eingöngu í trönuberjum hefur verið rannsakað frekar og benda niðurstöður til þess að inntaka á 36mg daglega geti dregið töluvert úr líkum á endurteknum sýkingum. Það er einnig góð vísbending um að stærri og frekari rannsókna sé þörf. Í Pro-Cyan erum 500 mg af Cranmax® sem inniheldur 36mg af PAC-A.
A-vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins og viðhaldi eðlilegrar slímhúðar en heilbrigð slímhúð veitir vernd gegn utanaðkomandi bakteríum. Þessi þrívirka blanda örverustofna, A-vítamíns og trönuberjaþykknis hefur reynst mörgum vel, hvort sem um er að ræða sem fyrirbyggjandi meðferð eða gegn vægum
sýkingum sem eru á byrjunarstigi. Pro-Cyan hentar sérstaklega vel fyrir ófrískar konur og mega börn einnig taka það en þá er mælt með hálfum skammti.
Bio-Kult Pro-Cyan
Bio-Kult Pro-Cyan – fyrir jafnvægi í bakteríuflóru líkamans
Bio-Kult Advance – fyrir jafnvægi í bakteríuflóru líkamans
Sérhönnuð góðgerlablanda með það að markmiði að byggja upp öfluga þarmaflóru og styðja við eðlilega virkni ónæmiskerfisins.
Inniheldur 14 sérvalda góðgerlastofna.
Lýsing
Bio-Kult Pro-Cyan góður liðsauki í baráttunni gegn óþægindum í þvagrás
Pro-Cyan inniheldur háþróaða þrívirka formúlu af vinveittum gerlum, trönuberjaþykkni og A vítamíni.
Hlutverk gerlanna og A vítamíns er að hjálpa líkamanum við að viðhalda eðlilegu bakteríumagni í þörmum og eðlilegri starfsemi í þvagrásarkerfinu. Trönuberjaþykkni er þekkt fyrir eiginleika sína og talinn verja gegn blöðrubólgu, en efni í þeim er talið geta hindrað að E.Coli bakterían nái að að fótfestu í slímhúð þvagrásar og skolar henni út með þvaginu.
- Háþróuð þrívirk formúla gegn þvagfærasýkingum
- Trönuberjaþykkni er talið hindra E. Coli bakteríu í að ná fótfestu í slímhúð þvagrásar
- Sérstakir gerlastofnar, ásamt A vítamíni viðheldur eðlilegri starfsemi þvagrásarkerfis
Lifandi gerlastofnar:
- L. acidophilus PXN 35
- L. plantarum PXN 47
Hvert hylki inniheldur:
- A – vítamín 160 míkrógrömm (20% af ráðlögðum dagsskammti)
- Proanthocyanidins 18 mg (PAC)
Ábyrgjumst 500 milljónir lifandi góðgerla (>5 x 108 CFU/hylki), samsvarar 1,2 milljörðum lifandi gerla í grammi (1,2 x 109 CFU/gramm), þar til geymsluþoli lýkur.
Frekari upplýsingar
Pakkningastærð | 45 |
---|
Leiðbeiningar um notkun
Takið 1 töflu tvisvar á dag með mat.
Börn 5+ er ráðlagt að taka helming af ráðlögðum dagskammti.
Bio-Kult inniheldur soja og mjólk í mjög litlu magni og ætti það ekki hafa nein áhrif á þá einstaklinga sem eru með mjólkur- og/eða soja óþol.
Geymist við stofuhita á þurrum stað og ekki láta standa í beinu sólarljósi. Geymist þar sem börn ná ekki til.
Artasan mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótaefnum. Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma og tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma á borð við flogaveiki, ofvirkan skjaldkirtil og sykursýki.
Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótaefni eiga ekki að koma í staðinn fyrir fjölbreytt og hollt mataræði.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.